Enn betri þjónusta

Viðskiptaferðir Úrvals Útsýnar hafa þjónustað starfsmenn fyrirtækja og einstaklinga um árabil og hefur sú vinna skilað þeim þeirri þekkingu sem þarf til að finna ætíð bestu lausnina fyrir sína viðskiptavini. Hjá VÚÚ starfa ferðaráðgjafar með áralanga reynslu og mikla kunnáttu. Nýtt bókunarkerfi hjá okkur gerir viðskiptavinum kleift að skoða öll sín viðskipti beint á netinu.


Hversu dýrmætur er tími þinn?

Viðskiptaferðir Úrvals Útsýnar bjóða fyrirtækjum að gera hagstæðan samning sem felur í sér betri tímanýtingu og hagkvæmari rekstur. Það er því margvíslegur ávinningur sem hlýst af því að vera í viðskiptum við Viðskiptaferðir Úrvals Útsýnar.

Það getur tekið langan tíma að finna rétta og hagstæðasta fargjaldið. Nýttu þér þjónustu sérfræðinga okkar sem finna fyrir þig hagkvæmustu og/eða auðveldustu leiðina á áfangastað hverju sinni ásamt hótelbókunum og bílaleigu. Höldum utan um allar upplýsingar sem nauðsynlegt er að gefa upp við bókun. Við erum óháð flugfélögum og þess vegna getum við bókað og gefið út farseðla hjá öllum helstu flugfélögum heims sem gerir það að verkum að við getum ætíð boðið viðskiptavinum okkar bestu kjörin og ferðamöguleikana

Viðskiptaferða 24 / 7